Problem D
Flæðasmíði
Languages
en
is
Verið er að nýta sumarið í viðhaldsvinnu og Veitum vantar aðstoð við að skipuleggja vatnslagnir. Búið er að finna $n$ uppsprettur sem þarf nú að tengja við $m$ neytendur. Hver uppspretta gefur nákvæmlega $1 \mathrm{L/s}$ og þægilegt nokk geta lagnirnar flutt nákvæmlega $1 \mathrm{L/s}$. En hver neytandi þarf að fá jafn mikið vatn og allir aðrir, annars myndast ósætti sem gengur ekki. Til þess að laga þetta er hægt að skeyta saman lögnum. Hver samskeytipunktur getur haft allt að tveimur inntökum og allt að tveimur úttökum. Flæði út er ávallt jafnt flæði inn, en þar til viðbótar passar samskeytingin upp á að ef tvö úttök eru til staðar muni flæðið um bæði úttök ávallt vera jafn mikið. Einnig eru lagnirnar útbúnar ventilum svo ef lögn er lögð frá $A$ til $B$ flæðir vatnið aðeins í þá átt, ekki til baka. Nú þarf að skipuleggja hvernig raða má niður samskeytipunktum og lögnum til að tengja inntök við úttök. Hver neytandi þarf að fá $\frac{n}{m} \mathrm{L/s}$. Einnig þarf að passa upp á að hver lögn geti aðeins tekið $1 \mathrm{L/s}$, samskeytingarnar geta hins vegar þolað allt sem lagnirnar bera í þær. Uppspretturnar eru númeraðar $1, 2, \dots , n$ og neytendur $n + 1, n + 2, \dots , n + m$. Fjármagn er ekki endalaust, svo heildarfjöldi samskeyta í úttaki má mest vera $50\, 000$. Eins má heildarfjöldi lagna ekki vera meiri en $50\, 000$. Loks má ekki leggja lögn út frá neytanda.
Inntak
Inntakið inniheldur tvær heiltölur $1 \leq n \leq m \leq 1\, 000$.
Úttak
Fyrsta lína úttaks skal innihalda tölurnar $V$ og $E$, fjölda samskeyta,uppsprettur og neytendur meðtaldir, og fjöldi lagna milli þeirra. Ný samskeyti eru þá númeruð $n + m + 1, n + m + 2, \dots , V$. Næst skulu koma $E$ línur, hver lýsir einni lögn. Ef lögnin liggur frá samskeytum $A$ til $B$ skal prenta $A$ og $B$ með einu bili á milli.
Ef til eru margar lausnir máttu skrifa út einhverja þeirra.
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
1 2 |
3 2 1 2 1 3 |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
1 5 |
11 12 1 7 1 8 7 1 7 9 8 10 8 11 9 1 9 2 10 3 10 4 11 5 11 6 |
Sample Input 3 | Sample Output 3 |
---|---|
3 5 |
15 19 1 9 1 8 2 7 2 6 3 5 3 4 9 10 9 11 10 12 10 15 11 13 11 14 12 15 12 4 13 5 13 6 14 7 14 8 15 9 |